Spáir því að verðbólgan aukist í 4,5% 20. nóvember 2012 11:06
Greining Arion banka spáir 0,3% hækkun vísitölu neysluverðs (VNV) í nóvember. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan hækka og fara í 4,5% í nóvember samanborið við 4,2% í október. Bráðabirgðaspá greiningarinnar gerir ráð fyrir 0,4% hækkun VNV í desember, 0,2% hækkun í janúar og svo 0,7% hækkun í febrúar. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að eins og svo oft áður mun krónan spila stóra rullu á næstu mánuðum en töluverð gengisáhrif komu fram í síðustu verðmælingu Hagstofunnar (um 0,3% til hækkunar VNV). „Við teljum að áhrifin af um 8% lækkun krónunnar frá því í ágúst muni halda áfram að koma fram í VNV á næstu mánuðum. Þó má ekki gleyma að krónan hefur styrkst nokkuð á allra síðustu dögum og haldi sú þróun áfram mun það vissulega draga eitthvað úr verðþrýstingi," segir í Markaðspunktunum. „Eins og hér er vikið að teljum við að ef veiking krónunnar gengur ekki til baka sé útlit fyrir að verðbólgan verði á bilinu 4-4,5% á næstu mánuðum. Þó mun verða áhugavert að sjá hvort að aukin umsvif og hækkandi verð fasteigna á höfuðborgarsvæðinu fari ekki að skila sér í auknum mæli í VNV. Reyndin hefur verið sú að raunvextir húsnæðis og nokkur lækkun á húsnæðisverði úti á landi hafa sett strik í reikninginn. Því gerum við ráð fyrir hóflegum hækkunum á húsnæðisliðnum á næstu mánuðum, a.m.k. þar til annað kemur í ljós."
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira