Viðskipti innlent

Icelandair er stundvísasta félagið innan AEA

Icelandair var stundvísast allra evrópskra flugfélaga sem eru í AEA, Evrópusambandi flugfélaga, í alþjóðaflugi í október, annan mánuðinn í röð.

Í tilkynningu segir að félagið var stundvísast allra í langflugi, þ.e. flugi á lengri flugleiðum, í októbermánuði, með 94,5% stundvísi. Icelandair er einnig í efsta sæti í flugi á styttri og meðallöngum flugleiðum með 92,8% stundvísi. Samanlagt er stundvísin því 93,3% og er félagið númer eitt af 25 alþjóðlegum flugfélögum í þessari mælingu.

Þá er Icelandair ennfremur í efsta sæti í langflugi það sem af er á árinu 2012 með 91,1% stundvísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×