Eigendur Skeljungs vilja stækka hluthafahópinn Þorbjörn Þórðarson skrifar 26. nóvember 2012 13:10 Einar Örn Ólafsson, forstjóri Skeljungs. „
Rætt hefur verið um að skrá fyrirtækið í Kauphöllina þannig að það hefur verið stemmning fyrir því að breikka hluthafahópinn," segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri Skeljungs, spurður um fréttir þess efnis að hlutabréf í fyrirtækinu séu komin í söluferli hjá verðbréfafyrirtækinu Virðingu. Einar Örn vísar því á bug að fyrirtækið sé í söluferli, en staðfestir að Virðing og fleiri fyrirtæki á fjármálamarkaði hafi lýst yfir áhuga á að annast viðskipti með bréf í Skeljungi séu þau yfirleitt til sölu. Skeljungur er í mjög traustum rekstri. Hagnaður fyrirtækisins nam 629 milljónum króna á síðasta ári. Eigið fé var 3,7 milljarðar króna um áramót og eiginfjárhlutfallið 29,7 prósent. Rekstrartekjurnar voru 31,6 milljarðar króna á árinu 2011. Hjón á fertugsaldri, þau Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir og Guðmundur Þórðarson, eru eigendur 94,7 prósent hlutafjár í Skeljungi. Aðrir hluthafar eiga 5,3 prósent. Fréttastofunni hafa borist nokkrar ábendingar um að Skeljungur sé til sölu. Einar Örn segir hins vegar að engar viðræður séu í gangi núna um sölu á hlut í fyrirtækinu. „Eins og þetta blasir við mér þá var það aldrei inni í myndinni að selja meirihluta. Það hafa einhverjir komið að máli við hluthafana og það voru einhverjar viðræður í gangi að breikka hluthafahópinn með það fyrir augum að hafa hann stærri þegar við færumst nær því að skrá fyrirtækið á hlutabréfamarkað. Hingað til hafa þessar viðræður ekki leitt til neins og ég veit að það eru engar viðræður í gangi núna," segir Einar Örn. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira