Eins og bólgueyðandi lyf við alvarlegum sjúkdómi Magnús Halldórsson skrifar 28. nóvember 2012 14:00 Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það framlag sem ríkisstjórnin ákvað í gær að leggja í Íbúðalánasjóð, allt að þrettán milljarða, virka eins og bólgueyðandi lyf á alvarlegan sjúkdóm. Hann segir með ólíkindum að stjórnvöld hafi ekki reiknað með því að þurfa að koma Íbúðalánasjóði til aðstoðar í fjárlögum 2013. „Þessar upphæðir eru með þeim hætti, að það er ábyrgðarlaust að reikna ekki með þessu í fjárlögum fyrir næsta ár," segir Bjarni. Hann segir auk þess að kerfisvandi sjóðsins hafi ekki verið greindur nægilega vel af stjórnvöldum, og að það sé slæmt að stjórnvöld hafi ekki gert sér grein fyrir alvarlegri stöðu hans, og gripið til aðgerða fyrr. Samkvæmt skýrslu IFS um málefni Íbúðalánasjóðs, þarf sjóðurinn 22,5 milljarða króna frá ríkissjóði á næstu þremur árum til þess að styrkja eiginfjárgrunn sinn. Bjarni segir að nálgast þurfi vandamál sjóðsins af miklu meiri festu en stjórnvöld hafi gert hingað til, enda felist alvarleiki málsins í því að ríkissjóður beri ábyrgð á öllum skuldbindingum sjóðsins. Heildarskuldir hans námu um mitt þetta ár 870 milljörðum og eignir 876 milljörðum, og eiginfjárhlutfallið því 1,4 prósent. „Sjóðurinn er samofinn lífeyriskerfi landsins, og að mínu mati má ekki fresta aðgerðum til þess að taka á hinum raunverulegu vandamálum sjóðsins, sem tengjast ekki bara skorti á eigin fé, heldur kerfislægum vandamálum einnig. Það verður að kortleggja þessi vandamál. Þau þola enga bið, og að mínu mati er það ábyrgðarlaust hjá stjórnvöldum að taka ekki fyrr á þessum málum, og fresta nauðsynlegum aðgerðum enn frekar. Það einfaldlega gengur ekki," segir Bjarni.
Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Sjá meira