Gamli Landsbankinn á 200 milljarða umfram Icesave-skuldina Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. nóvember 2012 13:20 Slitastjórn gamla Landsbankans.
Eignir þrotabús gamla Landsbankans voru í lok september um 200 milljörðum krónum hærri en forgangskröfurnar, það er Icesave innlánin, nema. Þetta kom fram á kröfuhafafundi bankans í morgun. Á fundinum kynnti slitastjórn Landsbanka Íslands kröfuhöfum uppfærðar upplýsingar um áætlað virði eignasafns bankans miðað við stöðuna í lok september. Umtalsverður árangur hefur náðst í endurheimtum og nam raunaukningin á áætluðu verðmæti eigna milli ársfjórðunga tæplega 11 milljörðum króna. Heildaraukningin að teknu tilliti til breytinga á gengi íslensku krónunnar gagnvart helstu gjaldmiðlum nam tæplega 21 milljarði króna.Í tilkynningu á vef slitastjórnar kemur fram að áætlað verðmæti eigna gamla Landsbankans hefur frá upphafi farið stighækkandi, en um þessar mundir eru liðin rúmlega 4 ár frá falli bankans. Ef miðað er við fastsett gengi íslensku krónunnar þann 22. apríl 2009 gagnvart þeim erlendum myntum sem eignasafn bankans samanstendur af hefur áætlað verðmæti eignasafnsins hækkað, að meðtöldum þremur hlutagreiðslum til forgangskröfuhafa, úr 1.104 milljörðum króna þann 22. apríl 2009 í 1.507 milljarða króna þann 30. september 2012, eða um samtals 403 milljarða króna eða sem nemur um 36%. Áætlað virði eignasafnsins er því nú um 200 milljörðum krónum hærra en áætluð fjárhæð forgangskrafna. Slitastjórn LBI greiddi út hlutagreiðslur til forgangskröfuhafa í slitameðferðinni í þriðja sinn þann 5. október síðastliðinn. Samtals var greitt út jafnvirði nálægt 82 milljörðum króna. Í heild hefur því slitastjórn greitt út að jafnvirði nálægt 660 milljörðum króna samanlagt í þremur hlutagreiðslum. Það svarar samtals til um 50% af fjárhæðum forgangskrafna.
Mest lesið Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Viðskipti innlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent