Seðlabankinn varaði við stöðunni árið 2004 Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. nóvember 2012 16:52 Birgir Ísleifur Gunnarsson var seðlabankastjóri þegar lögin voru afgreidd.
Seðlabanki Íslands varaði við þeirri stöðu sem nú er komin upp hjá Íbúðalánasjóði þegar frumvarp til laga um húsnæðismál var til umræðu á Alþingi á vormánuðum 2004. Aðvörunin birtist í umsögn um frumvarpið sem Seðlabankinn sendi félagsmálanefnd, sem þá fjallaði um frumvarpið. Það voru einkum ákvæði í frumvarpinu þar sem fram kemur að lántökum hjá Íbúðalánasjóði sé heimilt að greiða aukaafborganir af skuldabréfum sínum eða að endurgreiða skuldina að fullu fyrir gjalddaga sem Seðlabankinn gerði athugasemdir við. Þetta er einn hluti þess vandamáls sem sjóðurinn glímir við núna þegar óverðtryggð lán bankanna eru mun hagstæðari heldur en lán Íbúðalánasjóðs. Nefnd á vegum fjármálaráðuneytis og félagsmálaráðuneytis sem skilaði tillögum um breytingar á skuldabréfaútgáfu Íbúðalánasjóðs mælti eindregið með því að sett yrðu uppgreiðsluálag á íbúðabréf sem næmi mun á ávöxtun fasteignabréfsins sem verið væri að greiða upp fyrir gjalddaga og ávöxtun svipaðs markaðsbréfs á þeim tíma á markaði. Seðlabankinn tók í umsögn sinni um frumvarpið undir tillögu nefndarinnar.Töldu að milljarðagat gæti orðið í fjármögnun ÍbúðalánasjóðsÍ umsögninni sagði Seðlabankinn að helsta ástæðan fyrir þessari tillögu nefndarinnar væri að hætta sjóðsins af uppgreiðslum fyrir tímann gæti verið veruleg þar sem fjármögnunin væri föst og bundin út líftíma fasteignaveðbréfsins. Milljarðagat gæti orðið í fjármögnun Íbúðalánasjóðs. Tæplega væri séð að Íbúðalánasjóður hefði bolmagn til að mæta slíkum hræringum, jafnvel þótt gripið yrði til aðgerða. Þá sagði Seðlabankinn að ef upp kæmi sú staða að samkeppni við Íbúðalánasjóð þrýsti niður vöxtum fasteignafjármögnunar gæti sjóðurinn lent í vanda. Lántakendur hans skudbreyttu í ódýrari lán en skildu sjóðinn eftir með óbrúað gat sem ekki yrði með góðu móti fjármagnað með vaxtahækkun, þar sem hærri vesxtyir sjóðsins leiddu til minni áhuga lántaka og hugsanlegs flótta úr sjóðnum. Ef sjóðurinn færi síðan að í samræmi við ætlan frumvarpsins og gripi til uppgreiðsluálags myndu vaxtakjör leiða til þess að lánveitingar stöðvuðust alveg.
Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Sjá meira