Viðskipti innlent

Mikil hækkun á vísitölu framleiðsluverðs

Vísitala framleiðsluverðs í október s.l. var 215,3 stig og hækkaði um 3,9% frá september.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 267,9 stig, sem er hækkun um 0,6% (vísitöluáhrif 0,2%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 232,8 stig, hækkaði um 11,2% (3,9%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,1% en vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 1,7% (-0,2%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 1,0% (-0,2%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 5,4% (4,1%).

Miðað við október í fyrra hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 1,0% en verðvísitala sjávarafurða hækkað um 2,8%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 2,8% en matvælaverð hefur hækkað um 2,8%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×