Útlánasafn Arion banka í lagi Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. nóvember 2012 11:19 Höskuldur Ólafsson er forstjóri Arion banka.
Útlánasafn Arion banka er ekki ofmetið, samkvæmt niðurstöðu skoðunar sem Fjármálaeftirlitið gerði fyrr á árinu. Skoðunin beindist að virðismati lána á öðrum ársfjórðungi ársins 2011. Í maí sendi Fjármálaeftirlitið Arion banka hf. skýrslu sem markaði lok á þessari umfangsmiklu skoðun á aðferðum bankans við virðismat útlána, gagnasöfnun og skjölun viðeigandi upplýsinga. Úrtakið í könnuninni náði til 43% af fyrirtækjalánum bankans, segir á vef Fjármálaeftirlitsins. Meginniðurstaða athugunarinnar var að ekki væru vísbendingar um að bókfært virði útlánasafns bankans væri ofmetið. Fjármálaeftirlitið setti fram ábendingar og gerði athugasemdir við verklag bankans við virðismat, upplýsingamiðlun innan bankans, skjalagerð, gagnaöflun og skráningu upplýsinga. Innri endurskoðun bankans var falið að gera grein fyrir úrbótum bankans vegna athugasemda og ábendinga Fjármálaeftirlitsins fyrir lok september síðastliðins. Niðurstaða innri endurskoðunar var sú að Arion banki hf. hefði í aðalatriðum brugðist við öllum ábendingum og athugasemdum eftirlitsins. Enn er þó unnið að úrbótum innan bankans og mun því starfi ljúka á næstu mánuðum.
Mest lesið EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira