Viðskipti hefjast í næstu viku Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. nóvember 2012 11:33 Viðskipti með bréf í Eimskip hefjast í næstu viku.
Viðskipti með hlutabréf Eimskipafélags Íslands munu hefjast í Kauphöllinni þann 16. nóvember næstkomandi. Kauphöllin hefur samþykkti umsókn Eimskips um skráningu að uppfylltum skilyrðum um dreifingu hlutafjár, segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka. Almennu útboði Eimskipafélagsins lauk á föstudaginn. Samtals bárust áskriftir fyrir rúmlega 11 milljarða króna í almenna útboðinu sem nemur um fimmfaldri umframeftirspurn sé miðað við þann 5% hlut sem boðinn var til sölu af Landsbankanum, ALMC og Samson. Í ljósi mikillar umframeftirspurnar var, líkt og fram kom í skráningarlýsingu, aukið við framboðið og voru samtals seldir 16 milljón hlutir eða sem nemur 8% af útgefnu hlutafé félagsins. Útboðsgengið var fyrirfram ákveðið upp á 208 krónur á hlut. Sala á hlutum í almennu útboði kom til viðbótar við sölu á 20% hlut sem seldur var í lokuðu útboði og lauk fimmtudaginn 26. október. Eimskip verður þriðja félagið sem hefur verið skráð í Kauphöllina eftir hrun en Hagar voru nýskráðir í desember og fasteignafélagið Reginn kom nýtt inn á markað í júlí.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira