ASÍ leggst gegn fríverslunarsamningi við Kólumbíu Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. nóvember 2012 14:46 Gylfi Arnbjörnsson er forseti ASÍ. Mynd/ GVA.
Alþýðusamband Íslands leggst gegn því að EFTA fullgildi fríverslunarsamning við Kólumbíu og landbúnaðarsamning Íslands og Kólumbíu sem nú liggja fyrir Alþingi Þetta kemur fram í umsögn ASÍ til Alþingis. ASÍ segir að mannréttindabrot gegn verkalýðsforingjum og meðlimum stéttarfélaga séu daglegt brauð í Kólumbíu þar sem réttindi launafólks séu fótum troðin. Bara á þessu ári hafi 35 verkalýðsforingjar verið myrtir í Kólumbíu. "Frá 1986 hafa tæplega 3000 fulltrúar kólumbískra verkalýðsfélaga verið myrtir, þarf af tæplega 800 formenn verkalýðsfélaga. Lítið er aðhafst vegna þessa ofbeldis sem ýmist er framið af stjórnvöldum sjálfum eða skipulögðum glæpasamtökum gegn greiðslu frá þeim sem telja hagsmunum sínum ógnað af starfsemi verkalýðsfélaga. Ofbeldi og glæpir gegnsýra kólumbískt samfélag og stjórnvöld hafa haldið því fram að ofbeldi gegn verkalýðshreyfingunni og forystumönnum hennar sé einungis hluti af því ástandi. Alþjóðleg verkalýðshreyfing, sérfræðingar og þing ILO - Alþjóðavinnumálastofnunarinnar eru ekki sammála því og telja að um sé að ræða skipulagða baráttu gegn grundvallarmannréttindum launafólks og gegn frjálsri verkalýðshreyfingu," segir í umsögninni. Þá segir ASÍ að Ísland, sem kýs að vera kyndilberi mannréttinda, á alþjóðavettvangi geti ekki verið aðili að samningum um frjáls viðskipti með vöru og þjónustu sem sprettur úr jarðvegi grófra og viðvarandi mannréttindabrota gegn launafólki og frjálsri verkalýðshreyfingu. Slíkir samningar styði ríkjandi ástand í stað þess að vinna gegn því. Þess vegna leggist ASÍ eindregið gegn staðfestingu þessara samninga.Mynd í fullri stærð af manni sem féll í átökum á torgi í höfuðborginni Bogota. AFP/Eitan Abramovich
Mest lesið Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira