Viðskipti innlent

Framleiðsluverð hækkar um 1,8% milli mánaða

Vísitala framleiðsluverðs í september 2012 var 207,3 stig og hækkaði um 1,8% frá ágúst 2012. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 266,2 stig, sem er hækkun um 3,3% (vísitöluáhrif 1,1%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 209,4 stig, hækkaði um 0,7% (0,3%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,2% (0,1%) en vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 1,5% (0,3%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,5% (-0,1%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um

2,5% (1,9%).

Miðað við september 2011 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 3,7% en verðvísitala sjávarafurða hækkað um 4,1%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 16,5% en matvælaverð hefur hækkað um 2,0%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×