Viðskipti innlent

Borgin selur ellefu timburhús

Reykjavíkurborg hefur auglýst til sölu og flutnings ellefu timburhús.

Fimm húsanna voru notuð fyrir starfsemi skólagarðanna víða um borgina og önnur fimm voru notuð sem kennslustofur við Rimaskóla, en hafa ekki verið notuð sem slík um tíma. Ellefta húsið er fyrrum húsnæði leikskóla.

Húsin verða seld í því ástandi sem þau eru í dag og eru kaupendur hvattir til að kynna sér það vel.

Á vef Reykjavíkurborgar eru ljósmyndir af húsunum ásamt ástandsmati fasteignasala.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×