Viðskipti innlent

Segja bönkunum frjálst að brjóta á rétti lántakenda

BBI skrifar
Lögbann verður ekki lagt á innheimtuaðgerðir Landsbankans.
Lögbann verður ekki lagt á innheimtuaðgerðir Landsbankans. Mynd/GVA
Hagsmunasamtök heimilanna telja að sönnunarbyrði hafi verið snúið við í máli þeirra gegn Landsbankanum sem féll í vikunni. Samtökin höfðu krafist þess að lögbann yrði lagt á innheimu bankans á gengistryggðum ólögmætum lánum meðan óvissa ríkir um eftirstöðvar þeirra. Hæstiréttur hafnaði kröfunni.

Rétturinn komst að því að ekki væru líkur á því að réttindi lántakenda færu forgörðum í þessum málum þó þeir greiddu mögulega of mikið af lánunum núna, ekki síst því bankinn hefur gefið yfirlýsingu um að hugsanlegar ofgreiðslur verði leiðréttar síðar ef niðurstöður dómstóla verða þær að skuldarar hafi greitt of mikið.

Hagsmunasamtök heimilanna telja að niðurstaðan sé reist á þeim grundvallarmisskilningi að bankar geti ekki orðið ógjaldfærir (gjaldþrota). Yfirlýsingar bankans um endurgreiðslur síðar eru látnar duga sem trygging fyrir hagsmuni skuldara. Hagsmunasamtökin telja að í reynd hafi sönnunarbyrði verið snúið við í málinu. Lögmenn bankans hefðu þurft að sýna fram á gjaldfærni Landsbankans vegna væntanlegra endurkrafna en það hafi ekki verið gert.

„Vafinn er til staðar og hann hefði átt að túlka í þágu neytenda," segir í tilkynningu. „Í ljósi þessa dóms virðist því miður sem Landsbankinn og aðrar fjármálastofnanir hafi frjálsar hendur um að brjóta á rétti lántakenda."


Tengdar fréttir

Lögbann ekki lagt á Landsbankann

Hæstiréttur hafnaði í dag kröfu Hagsmunasamtaka heimilanna og talsmanns neytenda um að lögbann yrði lagt á útsendingu Landsbankans á greiðsluseðlum vegna ólögmætra gengislána. Rétturinn staðfesti þar með niðurstöðu Héraðsdóms.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×