Viðskipti innlent

Lækkanir áberandi í Kauphöllinni

Nokkur lækkun varð á gengi hlutabréfa í Kauphöll Ísland í dag. Þannig lækkaði gengi hlutabréfa Össurar um 1,5 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 197. Þá lækkaði gengi Haga um 1,29 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 19,15. Gengi bréfa Marels lækkaði um 0,74 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 135. Gengi bréfa Icelandair lækkaði um 0,56 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 7,11.

Eina félagið sem hækkaði var Bank Nordik en gengi bréfa félagsins hækkaði um 0,73 prósent og er gengið nú 69.

Sjá má ítarlegar upplýsingar um gang mála á markaðnum hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×