Bjarni Benediktsson spurði Steingrím J. Sigfússon á Alþingi í dag hvort mistök hefðu verið gerð þegar Landsbankinn var endurreistur. Hann hefur miklar áhyggjur af því að bankinn geti ekki staðið við stórar afborganir á komandi árum og óttast jafnvel annað hrun íslensku krónunnar.
Bjarni Ben hóf óundirbúnar fyrirspurnir og óð beint í Steingrím J. þegar hann vitnaði í rit Seðlabankans um að helsta ógnin við fjármálastöðugleika í landinu væri að Landsbankinn hefði ekki tryggt sér endurfjármögnun á lánum sem tekin voru við stofnun hans árið 2009. Og Bjarni spurði:
„Kann að vera að menn hafi gert hrapallega mistök þegar að nýja bankanum var komið á stofn með svona skökkum gjaldeyrisjöfnuði?"
„Nei ég tel ekki að það hafi verið gerð mistök þegar að íslensku bankarnir voru reistir," svaraði Steingrímur.
„Ég tel að íslensku krónunni og afnámi haftanna standi veruleg ógn af þeirri stöðu sem upp er komin. Þetta eru ekki litlar fjárhæðir. Sjötíu milljarðar á ári, frá árinu 2015 til 2018, sem Landsbankinn þarf á að halda. Við erum enn með höft og ríkisstjórnin er að vinna að því að herða þau," sagði Bjarni.
„Ég er ekki jafnsvartsýnn og háttvirtur þingmaður á það, að ef FME gefur grænt ljós á það að styrkur bankanna sé orðinn nægilegur til að þeir megi greiða arð og svo framvegis, að þeim muni opnast aðgangur að erlendum skuldabréfamörkuðum á næstu mánuðum eða misserum," sagði Steingrímur.
Skiptar skoðanir um endurreisn Landsbankans
Breki Logason skrifar
Mest lesið

Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar
Viðskipti erlent

Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“
Viðskipti innlent

Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum
Viðskipti innlent


Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti
Viðskipti innlent

Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi
Viðskipti innlent


Forstjóraskipti hjá Ice-Group
Viðskipti innlent

Gengi Play í frjálsu falli
Viðskipti innlent

Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu
Viðskipti innlent