Viltu fara til New York og fá pening að auki? Spilaðu þá með Magnús Halldórsson skrifar 1. október 2012 08:00 Markaðirnir geta verið krefjandi þegar kemur að ávöxtun fjármuna. Ávöxtunarleikurinn gefur þátttakendum góða innsýn inn í heim fjárfesta, og stuðlar að auki að auknu fjármálalæsi og skilningi á ávöxtunarmöguleikum.
Ávöxtunarleikurinn hefur formlega hafið göngu sína en innskráning í hann fer fram hér, á Vísi. Leikurinn byggist á því að þátttakendur reyna að ávaxta spilapeninga sína sem best og geta fjárfest í margvíslegum eignaflokkum, s.s hlutabréfum, skuldabréfum, sjóðum og gjaldeyri. Leikurinn fylgir nákvæmlega raunbreytingum á markaði og byggir ávöxtun þátttakenda á þeim. Leikurinn er fullkomnasti fjárfestahermir sem settur hefur verið upp hér á landi. Keldan er eigandi og rekstraraðili leiksins en hann er samstarfsverkefni Vísis, VÍB eignastýringarþjónustu Íslandsbanka, Kauphallarinnar og Libra. Leikurinn verður meðal annars nýttur í námskeiðahaldi á vegum VÍB, og verður kynning á leiknum á fundi á vegum VÍB klukkan 17:00 á morgun. Markmiðið með leiknum er að stuðla að betra fjármálalæsi og skilningi á ávöxtunarmarkaði fyrir fjármuni hér á landi, og hentar því ekki síst vel fyrir framhaldsskólanema, háskólanema og starfsfólk á vinnustöðum. Hægt er að keppa í einstaklings- og liðakeppnum í leiknum. Leikurinn veitir góða innsýn í fjárfestingaumhverfið hér á landi, sem er um margt krefjandi, innan gjaldeyrishafta. Þátttakendur fá 10 milljónir spilapeninga, Keldukróna, við upphaf leiksins og reyna síðan að ávaxta féð sem best með fjárfestingum, eftir reglum leiksins. Til mikils er að vinna fyrir þann sem skilar bestu ávöxtun þegar keppnin verður gerð upp næsta vor. Vinningar fyrir sigurvegara keppninnar eru m.a. ferð fyrir tvo til New York og 200.000 krónur í sjóðum hjá VÍB. Jafnframt verða veitt verðlaun til hástökkvara mánaðarins hverju sinni, út keppnistímabilið. Sjá má Facebook síðu leiksins hér en þar verður hægt að fylgjast náið með gangi mála í leiknum, auk þess sem tilkynnt verður um hástökkvara mánaðarins á síðunni og allt annað er við kemur leiknum. Innskráning í leikinn fer fram hér, á viðskiptavef Vísis.
Mest lesið EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira