Viðskipti innlent

Íbúðaverð í borginni lækkar en veltan á markaðinum eykst

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,2% í ágúst frá fyrri mánuði samkvæmt mælingum Þjóðskrár Íslands. Hinsvegar hefur veltan á íbúðamarkaðinum aukist töluvert í sumar miðað við sama tímabil í fyrra.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að lækkunin er tilkomin vegna þess að íbúðir í fjölbýli lækkuðu um 0,8% frá fyrri mánuði, en íbúðir í sérbýli hækkuðu hinsvegar um 1,4% frá fyrri mánuði. Fjölbýlisíbúðir vega mun þyngra í vísitölunni en sérbýli, enda lunginn af fasteignaviðskiptum með íbúðir í fjölbýli.

Það sem af er þessu ári hefur íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 3,3% að nafnverði en að teknu tilliti til verðbólgu hefur íbúðaverð nánast staðið í stað að raunverði. Undanfarna 12 mánuði hefur íbúðaverð hækkað um 6,7% að nafnverði og 2,4% að raunverði.

Fram kemur í Morgunkorninu að á sama tíma og dregur úr hækkunartaktinum er veltan á íbúðamarkaði að aukast jafnt og þétt og sölutími eigna er að styttast.

„Yfir sumarmánuðina voru gerðir samtals 1.395 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði og er það aukning um 12% frá sama tíma fyrra árs þegar samningarnir voru 1.246. Það sem af er þessu ári hafa verið gerðir 3.400 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og er það aukning um 17% frá sama tímabili í fyrra," segir í Morgunkorninu.

„Á sama tíma er sölutími eigna að styttast, en samkvæmt útreikningum Seðlabankans er meðalsölutími birgða nú kominn niður í 9,9 mánuði. Hér er miðað við þann tíma sem tekur að selja eignir sem auglýstar eru til sölu miðað við veltu viðkomandi mánaðar. Til samanburðar var þessi tími 13,4 mánuðir í apríl síðastliðnum og 23,6 mánuðir í ársbyrjun 2011."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×