Fengu tæplega 200 milljónir króna frá þrotabúi Glitnis Magnús Halldórsson skrifar 24. september 2012 18:29
Lögmennirnir Páll Eiríksson og Steinunn Guðbjartsdóttir fengu tæplega 200 milljónir króna frá þrotabúi Glitnis í fyrra vegna vinnu sinnar fyrir slitastjórn bankans. Samanlagðar greiðslur til þeirra beggja, með útseldri vinnu fulltrúa á þeirra vegum, hafa numið meira en 850 milljónum króna frá árinu 2009. Lífeyrissjóðirnir Gildi og Lífeyrissjóður verzlunarmanna fengu um helgina í hendur niðurgreiningu á kostnaði þrotabúss Glitnis vegna starfa slitastjórnarmanna, þeirra Páls Eiríkssonar og Steinunnar Guðbjartsdóttur, fyrir þrotabúið. Sjóðirnir höfðu áður hótað því að fara með málið fyrir dómstóla, þar sem slitastjórnin hafði neitað því að láta af hendi upplýsingar um launakostnaðinn. Fréttastofa, sem hefur gögnin undir höndum, hefur heimildir fyrir því að stjórnarmenn í lífeyrissjóðunum séu afar ósáttir við hversu háar greiðslur hafa runnið til slitastjórnarmanna. Frá árinu 2009 og fram á þetta ár hafa tæplega 313 milljónir króna runnið til lögmannsstofu Steinunnar, Lögmansstofu SG ehf. Þar af námu greiðslur í fyrra 100,5 milljónum króna. Greiðslur til lögmannsstofu Páls Eiríkssonar, Lögfræðiráðgjafar PE slf., hafa frá árinu 2009 numið ríflega 240 milljónum króna. Þar af námu greiðslur vegna ársins í fyrra ríflega 82 milljónum króna. Þessu til viðbótar hafa heildargreiðslur þrotabússins til lögmannstofa þeirra Páls og Steinunnar numið tæplega 300 milljónum króna frá árinu 2009. Samtals gerir þetta ríflega 850 milljónir króna, eða sem nemur ríflega 20 milljónum króna á mánuði. Samkvæmt heimildum fréttstofu eru lífeyrissjóðirnir nú með gögnin til skoðunar og meðferðar og er ekki útilokað að þeir leita réttar síns fyrir dómstólum, með það fyrir augum að lækka kostnað við slitin á þrotabúinu, en sjóðirnir báðir hafa þegar tapað háum fjárhæðum vegna falls Glitnis, fyrir tæpum fjórum árum.
Mest lesið Erlendir farþegar á bak við 81 prósent tekna Icelandair Viðskipti innlent Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent Virði Icelandair hrapar eftir uppgjör Viðskipti innlent Skamma og banna Play að blekkja neytendur Neytendur Auður leiðir nýja samsteypu á íslenskum markaði Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Isavia braut lög á Keflavíkurflugvelli Neytendur „Við erum alls ekki í nokkru stríði“ Viðskipti innlent Vaka stýrir Collab Viðskipti innlent Nýtt trend: Sami stjórnandinn að vinna fyrir mörg fyrirtæki Atvinnulíf Fleiri fréttir Erlendir farþegar á bak við 81 prósent tekna Icelandair Auður leiðir nýja samsteypu á íslenskum markaði Virði Icelandair hrapar eftir uppgjör „Við erum alls ekki í nokkru stríði“ Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Vaka stýrir Collab Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Sjá meira
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent