Viðskipti innlent

Segir sæmilegan gang í íslenska hagkerfinu

Greining Arion banka segir að sæmilegur gangur hafi verið í hagkerfi Íslands það sem af er árinu. Heilt yfir er gangurinn ekki ósvipaður því sem mældist á sama tímabili á síðasta ári.

Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að líkt og í fyrra þá eru einkaneysla og fjárfesting að vaxa milli ára og hagvöxtur mjög svipaður milli ára.

Líkt og í fyrra þá draga utanríkisviðskipti hagvöxtinn niður sem að getur verið áhyggjuefni út af fyrir sig þó eðlilegt sé að innflutningur vaxi samfara auknum umsvifum í hagkerfinu.

Þó eru vísbendingar þess efnis að einkaneysla landsmanna sé í auknum mæli að beinast út fyrir landsteinana og það er ekki jákvæð þróun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×