Viðskipti innlent

Mikil aukning í alvarlegri skattsvikamálum

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Bryndís Kristjánsdóttir, skattrannsóknarstjóri.
Bryndís Kristjánsdóttir, skattrannsóknarstjóri. Mynd/Fréttir Stöðvar 2
Á aðeins einu og hálfu ári hefur hefur skattrannsóknarstjóri vísað 71 skattsvikamáli til embættis sérstaks saksóknara. Mikil aukning er í alvarlegri skattsvikamálum.

Hinn 1. september í fyrra sameinaðist efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra sérstökum saksóknara og með sameiningu tók hið nýja embætti við 30 skattamálum sem voru í rannsókn hjá efnahagsbrotadeild og voru ókláruð.

Sattrannsóknarstjóri vísaði alls sjötíu og einu máli samtals til sérstaks saksóknara í fyrra og í ár. Þrjátíu og sjö málum í fyrra og alls þrjátíu og fjórum skattsvikamálum til embættis sérstaks saksóknara það sem af er þessu ári.

Þrjátíu mál voru ókláruð við sameiningu embættanna. Fjöldinn hefur því rúmlega tvöfaldast.

Aukabúgrein

Hjá sérstökum saksóknara er í raun talað um skattsvikin sem „aukabúgrein."

Bryndís Kristjánsdóttir tók við sem skattrannsóknarstjóri í ársbyrjun 2007. Á hennar vakt eftir hrunið hefur embættið tekist á við nýjar áskoranir eins og flókin brot í skattaskjólum.

„Það sem hefur breyst síðustu misseri og þá sérstaklega á þessu ári er að það eru fleiri alvarleg mál sem hafa verið til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra, þ.e háar fjárhæðir eru undir og þau eru umfangsmikil, og það skilar sér síðan í því að hærra hlutfall mála sem lokið er rannsókn í sem fer til sérstaks saksóknara í stað þess að þeim sé lokið innan stjórnsýslunnar," segir Bryndís Kristjánsdóttir, skattrannsóknarstjóri. Bryndís segir skýringuna liggja í því að málin séu alvarlegri og og brotin séu þess eðlis að þeim verði ekki lokið með sekt.

Meint skattsvik í þeim málum sem vísað var til sérstaks saksóknara í ár og í fyrra hleypur á milljörðum króna. Af þessum skattsvikamálum eru nú á fjórða tug mála komin í ákærumeðferð. thorbjorn@stod2.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×