Borgin kaupir lóðir á Mýrargötu og slippsvæði fyrir 528 milljónir Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. september 2012 11:14 Borgarráð fundar.
Borgarráð samþykkti á borgarráðsfundi í morgun að kaupa lóðir á Mýrargötu og slippsvæði af Faxaflóahöfnum fyrir 528 milljónir króna. Mögulegt er að byggja allt að 250 íbúðir á svæðinu á milli Sjóminjasafnsins og Slippsins en reiknað er með að framkvæmdir hefjist fyrst þar. Á sama fundi var samþykkt að vísa rammaskipulagi gömlu hafnarinnar í Reykjavík til meðferðar í skipulagsráði. Rammaskipulagið byggir á vinningstillögu arkitektastofunnar Graeme Massie Architects sem bar sigur úr býtum í opinni hugmyndasamkeppni um Gömlu höfnina sem lauk í desember 2009. Tillagan gerir ráð fyrir þéttri blandaðri byggð við höfnina og meiri sveigjanleika en fyrirliggjandi deiluskipulag á svæðinu. Hægt er að skoða vinningstillöguna í meðfylgjandi myndum. Markmið rammaskipulagsins er að gera borgina að hluta af höfninni og höfnina hluta af borginni. Byggt verður þétt hafnarhverfi við sjóinn, húsin standa nánast á hafnarbakkanum og göturnar teygja sig niður að hafinu. Við það opnast þægilegar leiðir niður að höfninni og sjónásar skapast út á sjóinn. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að gert sé ráð fyrir því að Geirsgötu verði breytt úr fráhrindandi og hættulegri hraðbraut í vistlega borgargötu með talsvert hægari umferð en þar er nú. Gatan á samt sem áður að geta annað mikilli umferð sem fer þarna í gegn.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira