Viðskipti innlent

Almenn lán hjá Íbúðalánasjóði helmingi færri

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Almenn lán hjá Íbúðalánasjóði eru helmingi færri það sem af er ári en miðað við sama tímabil í fyrra. Forstjóri sjóðsins segir ástæðuna vera vinsældir óverðtryggðra íbúðalána sem bankarnir veita.

Þetta kemur fram í Mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs fyrir ágústmánuð. Heildarútlán sjóðsins í ágúst námu tæpum einum og hálfum milljarði og þar af voru rúmir einn komma fjórir milljarðar vegna almennra lána. Í ágúst í fyrra námu almenn útlán hinsvegar tveimur komma þremur milljörðum.

Það sem af er ári hefur sjóðurinn veitt áttahundruð og fimmtíu almenn íbúðalán frá áramótum í samanburði við fimmtán hundruð og sjötíu lán á sama tíma í fyrra. Þessi þróun á sér stað þrátt fyrir að veltan á fasteignamarkaði hafi aukist jafnt og þétt.

„Það er í raun þessi staða sem er uppi, að við erum ekki að bjóða óverðtryggð lán sem stendur. Þetta er ástand sem hefur varað á þessu ári. Það hefur verið spennandi kostur framan af þessu ári að vera í þessum lánum," segir Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs.

Sigurður segir að þetta hafi ekki mikil áhrif á sjóðinn.

„Við erum ekki í harðri samkeppni við bankana heldur að tryggja grunnþjónustu og tryggja húsnæðisöryggi alls almennings. En við erum síðan að horfa til þess að fara fljótlega að bjóða upp á óverðtryggð lán," Sigurður.

Sigurður segir undirbúning að því að sjóðurinn geti boðið óverðtryggð lán vera á lokastigi.

„Við þurfum auðvitað samþykki opinberra aðila til að klára það verkefni, og við erum stödd þar," segir Sigurður. Íbúðalánasjóður hefur einnig ákveðið að ekki verði farið í frekari útboð íbúðabréfa á þriðja ársfjórðungi.

„Það liggur fyrir og sést glögglega í okkar uppgjöri að við erum með mjög sterka lausafjárstöðu, Rúmlega tvöfalt það lausafé sem við höfum annars gert viðmið um. Það er ástand sem verður áfram viðvarandi að öllu öðru óbreyttu."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×