Viðskipti innlent

Bjóða 370 ára gamla bók til sölu

Ari Gísli Bragason fornbókasali hjá Bókinni er einn þeirra sem standa að uppboðinu.
Ari Gísli Bragason fornbókasali hjá Bókinni er einn þeirra sem standa að uppboðinu.
Tæplega 370 ára gömul bók eftir Arngrím lærða er núna föl þeim sem er reiðubúinn til að greiða rétt verð fyrir hana. Bókin verður seld á vefnum Uppboð.is, sem stendur til 30. september, en það er fornbókaverslunin Bókin og Gallerí fold sem standa að uppboðinu.

Um 100 bækur eru til sölu á uppboðinu en bók Arngríms lærða um Ísland er sú elsta. Hún er prentuð og gefin út í Amsterdam árið 1643. Bókin er í bönduðu skinnbandi og hefur verið bundin inn á sínum tíma af Unni Stefánsdóttur sem rak bókbandstofu í grjótaþorpinu.

Fleiri áhugaverðar bækur eru boðnar til sölu á uppboðinu. Þar af er ein biblía, sem er prentuð í Viðeyjarklaustri árið 1841. Einnig er tímaritið Margvíslegt gaman og alvara samantekið af Magnúsi Stephensen en seinni hluti verksins er prentaður á Beitistöðum 1818.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×