HB Grandi fær stóra lóð á Norðurgarði 17. september 2012 08:07
Stjórn Faxaflóahafna hefur samþykkt að úthluta HB Granda hf. alls um 13.700 fm lóð á Norðurgarði til að byggja á frystigeymslu og móttökuhús fyrir frystan fisk. Geymslan verður um 2.500 fm að stærð og mun taka um 2000 tonn af sjávarafurðum. Á vefsíðu Faxaflóahafna segir að HB Grandi hf. eigi og reki 5 frystiskip sem landa um 22.500 tonnum frystum fiski á Norðurgarði auk þess sem um 5.800 tonn af fiski eru unnin í fiskiðjuveri fyrirtækisins. Núverandi aðstaða og frystipláss er ekki fullnægjandi og kallar á úrbætur þannig að fyrirtækið mæti bestu gæðakröfum sem gerðar eru til meðhöndlunar á hráefninu. „Stjórn Faxaflóahafna sf. hefur lýst yfir ánægju sinni með að fyrirtækið hyggist styrkja starfsemi sína og halda áfram uppbyggingu fyrirtækisins en samhliða úthlutun lóðarinnar á Norðurgarði gera aðilar með sér samkomulag um að HB Grandi vinni með Faxaflóahöfnum sf. og Sambandi íslenskra myndlistarmanna að hönnun á ytra byrði frystigeymslunnar þannig að útlit hennar verði öllum til mikils sóma," segir á vefsíðunni. „Þá mun HB Grandi hf. vinna á næstu árum að endurbótum á útliti eigna á lóðinni Grandagarður 20 þar sem áður var fiskimjölsverksmiðja félagsins. Loks skal nefnt að aðgát verður að hafa við framkvæmdir á svæðinu þar sem hinn "forni" Norðurgarður liggur í gegnum lóðina, en fyrirtækið mun vinna að lausn á því verkefni í samvinnu við Faxaflóahafnir sf. og Húsafriðunarnefnd. HB Grandi hf. hyggst flytja framleiðslu sína út með skipum sem lesta mun vöru frá fyrirtækinu við Norðurgarð þannig að akstur með gáma úr Gömlu höfnina í Sundahöfn mun minnka frá því sem nú er. Það er umhverfislega jákvætt skref og bætir samhliða meðferð afurða fyrirtækisins - og lækkar kostnað. Stefnt er að því að frystigeymslan og flokkunarhúsið á Norðurgarði verði tekið í notkun upp úr miðju ári 2014."
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Sjá meira