Viðskipti innlent

Áfram dregur úr veltunni á fasteigmarkaðinum

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu var 91 í síðustu viku. Þetta er svipað og vikuna þar á undan en nokkuð minni fjöldi en nemur meðaltalinu á viku síðustu þrjá mánuði sem er 104 samningar.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þar segir að af þessum 91 samningi voru 68 samningar um eignir í fjölbýli, 17 samningar um sérbýli og 6 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Heildarveltan var 2.636 milljónir króna og meðalupphæð á samning 29 milljónir króna. Heildarveltan er um 400 milljónum króna minni en nemur vikumeðaltalinu síðustu þrjá mánuði. Samningsupphæðin er um 600 þúsundum króna lægri en nemur fyrrgreindu meðaltali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×