Viðskipti innlent

Engar hópuppsagnir í ágúst

Engar tilkynningar um hópuppsagnir bárust til Vinnumálastofnunnar í ágústmánuði að því er segir á vefsíðu stofnunarinnar.

Þar með hefur aðeins verið tilkynnt um tvær hópuppsagnir frá áramótum en það var annarsvegar í febrúar og hinsvegar í júlí síðastliðnum. Alls misstu tæplega 90 manns vinnuna í þeim hópuppsögnum samanlagt.

Þessi þróun er til marks um batnandi efnahagsástand á Íslandi enda sýna tölur að gjaldþrotum fyrirtækja hefur snarfækkað á milli ára og atvinnuleysið er stöðugt á niðurleið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×