Viðskipti innlent

Kæra á hendur framkvæmdastjóra Thule enn til meðferðar

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.
Embætti sérstaks saksóknara hefur enn til meðferðar kæru á hendur framkvæmdastjóra Thule Investments, Gísla Hjálmtýssyni, vegna meintra umboðssvika hans. Embættinu barst kæra í byrjun febrúar á þessu ári en henni var vísað frá 8. maí, þar sem ekki var talið vera tilefni til sakamálarannsóknar. Ríkissaksóknari fól síðan sérstökum saksóknara að taka málið til rannsóknar á nýjan leik. „Málið er enn til meðferðar hér innanhúss, en meira er ekki hægt að segja um það að svo stöddu. Það er í eðlilegum farvegi,“ sagði Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.

Í kærunni er Gísla gefið að sök að hafa leynt umbjóðendur sína upplýsingum, veitt þeim rangar upplýsingar og síðan „blekkt þá til að selja sér verðmæta hluti í félögum sem hann hafi síðan persónulega hagnast á um hundruð milljónir króna“, að því er fram kom í fréttum RÚV af málinu 28. júní sl.

Gísli Hjálmtýsson sagði í samtali við fréttastofu í dag að kæran væri ekki í samræmi við veruleikann. „Málið á sér enga stoð, og ég á ekki von á öðru en að sérstakur saksóknari komist að sömu niðurstöðu og hann hefur komist að á fyrri stigum málsins,“ sagði Gísli. Hann vildi ekki tjá sig um málið frekar.

Thule Investments annast rekstur og umsýslu fagfjárfestasjóðanna Brú Venture Capital og Brú II Venture Capital Fund.  Eignasöfn sjóðanna telja félög á Íslandi, USA, og í löndum Evrópusambandsins, að því er segir á vefsíðu Thule. Að mestu er Thule nú að annast eignir sem eru í inn í sjóðnum Brú II, að sögn Gísla. Þær eru metnar á um sex milljarða króna.

Á meðal þeirra sem eiga hlut í Brú II eru Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, ásamt lífeyrissjóðum, þar á meðal Stapa lífeyrissjóði, Gildi lífeyrissjóði, Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR) og Lífeyrissjóði verzlunarmanna.

Meðal eignarhluta eru hlutir ýmsum nýsköpunarfyrirtækjum, eins í Leikhúsmógulnum, sem m.a. hefur haft tekjur af sýningum á Hellisbúanum víða um heim, félaginu Blue Wave, sem gerir út úthafsveiðiskip sem stundar veiðar við Afríkustrendur, Caoz, sem framleiðir teiknimyndir, og Ensímtækni, sem vinnur m.a. snyrtivörur úr þorskensímum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×