Viðskipti innlent

Hagvöxtur var 2,6%

Landsframleiðsla jókst að raungildi um 2,6% samkvæmt endurskoðuðum þjóðhagsreikningatölum Hagstofunnar fyrir síðasta ár. Þessi vöxtur kemur í kjölfar mikils samdráttar tvö ár þar á undan, 4% árið 2010 og 6,6% árið 2009. Landsframleiðsla á liðnu ári er svipuð að raungildi og landsframleiðsla áranna 2006 og 2009.

Þjóðarútgjöld á árinu 2011 jukust nokkru meira en nam vexti landsframleiðslu, eða 3,8%. Einkaneysla jókst um 2,7% og fjárfesting um 12,9% en samneysla dróst saman um 0,9%. Útflutningur jókst um 4,1% og innflutningur nokkru meira, eða um 6,8%. Þrátt fyrir þessa þróun varð verulegur afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum á árinu 2011, eða 139 milljarðar króna.

Aukna fjárfestingu á síðasta ári má meðal annars rekja til mikils innflutnings á skipum og flugvélum en slík fjárfesting hefur lítil sem engin áhrif á landsframleiðslu. Fyrir utan fjárfestingu í skipum og flugvélum jókst fjárfesting á síðasta ári um 7,2%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×