Upplýsingatæknibúskapur Neyðarlínunnar hjá Nýherja 7. september 2012 14:02 Nýherji.
Neyðarlínan hefur samið við Nýherja um rekstur á upplýsingatæknibúskap sínum samkvæmt tilkynningu frá Nýherja. Samningurinn felur í sér rekstur á netkerfum, netþjónum, símkerfi og notendaþjónustu á tölvubúnaði fyrir alla starfsmenn Neyðarlínunnar. Þá var samið um ábyrgðarþjónustu á IBM netþjónum, Cisco netbúnaði, APC varaaflgjöfum og Avaya símkerfi sem tryggir Neyðarlínunni aðgang að færustu sérfræðingum viðkomandi birgja ásamt tryggu aðgengi að varahlutum. Innifalið í samningi er ráðgjöf helstu sérfræðinga Nýherja til stefnumörkunar til að tryggja ávallt sem best rekstraröryggi og ná fram hámarks hagkvæmni í rekstri upplýsingatæknikerfa Neyðarlínunnar. „Nýherji hefur um margra ára skeið verið eitt af leiðandi upplýsingatæknifyrirtækjum landsins og hefur yfir að ráða öflugum samstarfsaðilum erlendis, sem skipti miklu máli afhverju við ákváðum að velja Nýherja til þess að annast rekstur á kerfum okkar," segir Tómas Gíslason aðstoðarframkvæmdastjóri Neyðarlínunnar. „Það er afar ánægjulegt jafn öflugur aðili og Neyðarlínan, sem reiðir sig umfram allt á öryggi og hámarksupptíma á kerfum sínum, skyldi velja Nýherja til þess að annast rekstur á upplýsingatækniumhverfi sínu. Nýherji hefur áratuga reynslu á slíkum rekstri og starfar eftir skýrum og vottuðum ferlum. Enda eru sífellt fleiri fyrirtæki sem treysta alfarið á okkur um að tryggja hágæða þjónustu á upplýsingatæknikerfum sínum," segir Gunnar Zoéga, framkvæmdastjóri Tæknisviðs Nýherja. Neyðarlínan er leiðandi þjónustufyrirtæki á sviði neyðar- og öryggisþjónustu, samræmir viðbrögð og boðar björgunar- og neyðarsveitir á öllu landinu og er tengiliður milli landsmanna og viðbragðsaðila.
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Sjá meira