Viðskipti innlent

Töluvert dregur úr hagnaði Spalar

Hagnaður Spalar, sem rekur Hvalfjarðargöngin, eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins nam 33,9 milljónum kr. Þetta er töluvert minni hagnaður en á sama tímabili í fyrra þegar hagnaðurinn nam 53,1 milljón kr.

Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir í tilkynningu um uppgjörið að umferð og tekjur séu í samræmi við áætlanir fyrstu 6 mánuði rekstrarársins.

Útlit sé fyrir að nokkur samdráttur verði í umferð undanfarna 2 mánuði miðað við áætlanir og umferð sömu mánaða síðasta árs. Því séu líkur á að núverandi rekstrarár verði að öllu óbreyttu heldur lakara en áætlanir gerðu ráð fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×