Lagasetning myndi auka óvissuna og draga málið á langinn 22. ágúst 2012 12:00 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
Stjórnvöld hyggjast ekki setja lög til að slá á óvissuna sem uppi er vegna endurútreikninga á gengislánum, þau telja að slík lagasetning myndi eingöngu auka á óvissuna og draga málið á langinn. Ríkisstjórnin ræddi á fundi sínum í gær stöðu mála í endurútreikningi gengislána - en Lúðvík Bergvinsson, fyrrverandi alþingismaður og lögmaður, fullyrti nýverið að innheimta á gengislánum væri ólögmæt á meðan skuldarar eru í óvissu um hvað þeir skulda mikið. Hann sagði stjórnvöld þurfa að grípa inn í og tryggja hagsmuna tugþúsunda einstaklinga og fyrirtækja. Lúðvík og félagi hans fóru á fund ráðherranefndar um málið á mánudaginn og í kjölfarið tók efnahags- og viðskiptaráðuneytið saman minnisblað um endurútreikning gengislána. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir efnislega að þótt Árna Páls lögin hafi að nokkru tekið á óvissunni árið 2010 verði að teljast ólíklegt að lagasetning nú geti eytt þeirri óvissu sem enn er uppi um endurútreikning gengistryggðra lána. Í ljósi reynslunnar verði að teljast líklegt að einhverjir lánþegar myndu láta reyna á ítrustu kröfur sínar ef sett yrðu ný lög um endurútreikning. Því sé hætta á að inngrip stjórnvalda nú - áður en prófmálin ellefu hafa farið í gegnum dómskerfið - myndi aðeins auka óvissuna og tefja úrvinnslu málsins. Ólíklegt sé að hægt verði að semja lög sem dugi til að ná sáttum í samfélaginu um endurútreikning lánanna.
Mest lesið Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Viðskipti innlent „Þetta er bara algjörlega galið“ Neytendur Jólakjötið töluvert dýrara í ár Neytendur Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Viðskipti innlent Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Neytendur Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Viðskipti innlent Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Skipta dekkin máli? Samstarf Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Sjá meira