Matur

Í djúsinn, sultuna, baksturinn eða bara beint í munninn

Gott er að setja fersk bláber út á salatið.
Gott er að setja fersk bláber út á salatið.

Það er óhætt að segja að berjatíðin sé byrjuð og ef marka má árangur flestra úr berjamó þessa dagana virðist uppskeran þetta árið vera einstaklega góð. Það er eitt og annað sem má gera úr þessari hollustu auk þess að gæða sér á henni beint úr móanum.

Bláberjamúffur

Ef þú átt það helsta í bökunarskúffunni og ­nokkur fersk bláber þá eru bláberjamúffur málið.

1 bolli mjólk

¼ bolli jurtaolía

½ tsk. vanilludropar

1 egg

2 bollar hveiti

1/3 bolli sykur

3 tsk. lyftiduft

½ tsk. salt

1 bolli fersk bláber

Stillið ofninn á 200°C. Hrærið saman mjólkinni, olíunni, vanillu og ­eggjunum. Hrærið svo saman við hveitinu, sykrinum, lyftiduftinu og saltinu.

Hellið svo bláberjunum út í og setjið svo deigið í ­muffinsform.

Bakið í 20-25 mínútur eða þar til þau verða gullinbrún.

Bláberjasulta

1 kg bláber

1 kg sykur (eða 800 g)

Blandið saman og sjóðið varlega í 10 mínútur. Setjið í hreinar krukkur.

Frosin ber

Bláber (eða hvaða ber sem er) eru lögð í plastglas, vatni hellt yfir svo yfir fljóti. Lokað með plastfólíu og sett í frysti. Þannig geymast berin „fersk" langt fram á næsta ár. Einnig hægt að setja þau í litla samlokupoka og hella vatni með og binda þétt fyrir með bandi.

Þurrkuð ber

Bláberjum (eða hvaða ­berjum sem er, þó ekki mjög stórum og safa­ríkum) er sturtað í ofnskúffu sem búið er að leggja bökunar­pappír á. Sett í ofn og þurrkuð við 50°C í nokkra klukkutíma, ágætt að hafa ofninn örlítið opinn af og til svo rakinn fari út. Ágætt að snúa nokkrum sinnum en ekki nauðsynlegt.

Berin þorna og verða „þurrkuð ber", þvílíkt lostæti, og geymast allt árið.

Krækiberjahlaup

1 kg krækiber

750 g sykur

2 tsk. sultuhleypir + 2 msk. sykur

Setjið berin í pott ásamt helmingi sykurs og sjóðið við hægan hita í 10 mínútur. Takið þá pottinn af hellunni og kælið örlítið. Setjið það sem eftir er af sykrinum út í og sjóðið í 5 mínútur. Blandið saman sultuhleypi og 2 msk. af sykri; setjið í sigti og stráið yfir sjóðandi sultuna.

Hrærið vel í. Setjið ­hlaupið sjóðandi heitt í frekar litlar krukkur og hellið þær fullar. Skrúfið lokið strax á.

Krækiberjasaft

3 kg krækiber

2 lítrar vatn

40 g vínsýra

250-500 g sykur í hvern lítra af safa

Hreinsið og skolið berin ef þess gerist þörf. Hakkið þau eða merjið í berjapressu. Leysið vínsýruna upp í vatninu og blandið upplausninni í berjamaukið.

Látið standa í 24 tíma. Hellið á síu og látið saftina síast vel frá hratinu. Mælið saftina og blandið sykrinum saman við hana. Hrærið í þar til sykurinn er runninn. Hellið saftinni á hreinar og soðnar flöskur og lokið þeim strax.

Geymið saftina á köldum og helst dimmum stað.

Krækiberja-chutney

600 g krækiber

1 rauðlaukur, saxaður

2½ cm bútur af engiferrót, rifinn

1 hvítlauksgeiri, saxaður

1-2 epli, afhýdd og söxuð

1 dl vínedik

2½ dl púðursykur

1 tsk. sinnepsfræ

½ tsk. salt

1 dl rúsínur

Setjið allt í pott og látið malla við vægan hita í 20-25 mín. Hrærið í af og til. Hellið í hreinar krukkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×