Viðskipti innlent

Ráðinn framkvæmdastjóri Advania í Noregi

JHH skrifar
Ole Morten Settevik hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Advania í Noregi. Undanfarin ár hefur Ole Morten starfað sem forstjóri norska hugbúnaðarfyrirtækisins Bluegarden, sem sérhæfir sig á sviði mannauðslausna. Hann gegndi áður meðal annars stjórnunarstöðum hjá IBM og IDC í Noregi og var um árabil forstjóri Microsoft í Noregi. Ole Morten hefur enn fremur setið í stjórn Advania í Noregi undanfarin misseri. Samhliða þessum verkefnum hefur hann í liðlega tvo áratugi sinnt stjórnarstörfum hjá fjölmörgum fyrirtækjum í norskum þekkingariðnaði. Ole Morten er hagfræðingur frá Kaupmannahafnarháskóla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×