Viðskipti innlent

Álverðslækkun verður tvöfalt meiri en búist var við

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Útlit er fyrir að verð á helstu útflutningsafurðum Íslendinga verði nokkru lakara en búist var við í vor. Skýringuna má einkum rekja til þess að álverð er töluvert lægra en þá var gengið út frá auk þess sem hægt hefur á verðhækkunum helstu sjávarafurða. Gert er ráð fyrir að álverð lækki um 15% á þessu ári í stað 7½% í maíspánni og að sjávarafurðaverð hækki heldur minna eða um 2½% í stað 3½%. Horfur um verð sjávarafurða fyrir næsta ár hafa einnig versnað.

Þetta kemur fram í kaflanum Alþjóðleg efnahagsmál og utanríkisviðskipti, sem birtist í Peningamálum Seðlabankans, sem kom út í síðustu viku. Þar segir að helstu hagvísar fyrir evrusvæðið og Bandaríkin sem hafa birst frá útgáfu Peningamála í maí hafa almennt verið lakari en flestir greiningaraðilar höfðu búist við. Þá segir að þessi þróun, áframhaldandi vandi evrusvæðisins og efi um getu og vilja stjórnvalda aðildarríkjanna til að leysa vandann hafi orðið til þess að spár um hagvöxt fyrir svæðið á þessu og næsta ári hafi lækkað frá útgáfu síðustu Peningamála.

„Í byrjun árs mældist enginn hagvöxtur á evrusvæðinu í heild og á öðrum fjórðungi ársins dróst landsframleiðslan saman um 0,2% frá fyrri fjórðungi. Í Bretlandi hófst samdráttarskeið í lok síðasta árs og hefur ágerst á fyrri hluta þessa árs. Í Bandaríkjunum jókst hagvöxtur nokkuð á síðasta ári og í byrjun þessa árs en á öðrum ársfjórðungi hægði á honum á ný. Þegar líða tók á síðasta ár dró úr samdrættinum í Japan sem varð í kjölfar jarðskjálftans í byrjun ársins og hefur hagvöxtur mælst á nýjan leik á fyrri helmingi þessa árs," segir í Peningamálum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×