Hugsmiðjan með tvær bestu vefsíðurnar 7. febrúar 2012 22:39 Margeir Ingólfsson, ráðgjafi og einn eiganda Hugsmiðjunnar og Ragnheiður H. Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri
Tvær bestu vefsíður síðasta árs að mati fagfólks í greininni komu úr smiðju sama aðila, veffyrirtækisins Hugsmiðjunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu. Vefur Tryggingastofnunar hlaut nýverið verðlaun sem „besti ríkisvefurinn" en vefur stofnunarinnar kom afar vel út úr sérstakri úttekt Deloitte á vefsíðum hins opinbera og var síðan einnig valin af dómnefnd sem sú vefsíða sem sameinaði best þjónustuhlutverk viðkomandi stofnunar, væri aðgengileg öllum og nýtti góðar lausnir í vefhönnun. Alls voru skoðaðar 267 vefsíður ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga. Um liðna helgi var svo tilkynnt hverjir hlytu SVEF-verðlaunin svokölluðu, sem eru verðlaun vefiðnaðarins hér á landi. Hugsmiðjan fékk einnig verðlaun fyrir vef Orkusölunnar. Vefurinn fékk þrenn verðlaun þar á meðal sem „vefur ársins". Orkusalan hlaut einnig útnefningu í flokknum „Besti sölu- og kynningarvefurinn með færri en 50 starfsmenn" og í flokknum „Besta útlit og viðmót". Eðli málsins samkvæmt eru fyrirtækin sem tilheyra íslenska vefiðnaðinum flest ung að árum. Hugsmiðjan var stofnuð árið 2001 og aðeins 11 ára gömul telst hún vera „reynsluboltinn í vefbransanum". Hugsmiðjan er í eigu helstu lykilstarfsmanna og 25 manns vinna hjá fyrirtækinu (þar af 5 konur) á skrifstofum þess á Snorrabraut Ragnheiður H. Magnúsdóttir, vélaverkfræðingur og framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar segir í tilkynningu enga eina ástæðu fyrir þessari velgengni. „Við eigum náttúrulega orðið mjög reynt fólk á þessu sviði og þegar að gott samstarf tekst með viðskiptavininum og okkar sérfræðingum þá verður afraksturinn eftir því. Í tilfelli Orkusölunnar fengum við t.d. fullt frelsi til að prófa nýja hluti og þar var lögð sérstök áhersla á að hugsa vefinn út frá hugsanlegum notendum vefjarins. Allt var sett í samhengi - hönnun, myndir og texti spila t.d. sérstaklega vel saman og niðurstaðan er glæsilegur vefur sem notandanum langar til að kynna sér nánar. Svo er hann einfaldlega flottur og örlítið óvenjulegur í útliti," segir Ragnheiður í tilkynningunni.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira