Viðskipti innlent

Lítil hreyfing á Íslandi - grænar tölur hækkunar erlendis

Magnús Halldórsson skrifar
Gengi hlutabréfa í Kauphöll Íslands hefur lítil hreyfst í dag en heildarvelta í viðskiptum dagsins hefur numið 236 milljónum til þessa. Gengi bréfa Haga hefur hækkað um 0,27 prósent og er nú 18,4, en heildarvelta í viðskiptum með bréfa Haga nemur 222 milljónum, eða langsamlega stærsta hluta heildarveltu dagsins.

Gengi bréfa Icelandair hefur lækkað um 1 prósent í dag og er gengið nú 6,95.

Í Evrópu hafa hlutabréfavísitölur hækkað lítið eitt víðast hvar, en DAX vísitalan þýska hefur hækkað um 0,94 prósent. Nasdaq vísitalan bandaríska hefur hækkað örlítið í dag, eða um 0,04 prósent.

Sjá má upplýsingar um íslenska markaðinn hér. Upplýsingar um gang mála erlendis má sjá inn á markaðsvakt Wall Street Journal hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×