Útboð borana í Bjarnarflagi framlengt Kristján Már Unnarsson skrifar 14. ágúst 2012 18:45 Borað var á Þeistareykjum í fyrra. Nú er fyrirhugað að bora í Bjarnarflagi.
Landsvirkjun hefur framlengt útboð vegna Bjarnarflagsvirkjunar fram í september. Frestur til að skila inn tilboðum í boranir á háhitaholum átti að renna út í dag, 14. ágúst, samkvæmt útboðsauglýsingu fyrr í sumar. Nýr tilboðsfrestur hefur nú verið auglýstur til hádegis 6. september. „Ákveðið var að framlengja tilboðsfresti í borun við Bjarnarflag að ósk bjóðenda," sagði Magnús Þór Gylfason, starfandi yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar, þegar fréttastofa leitaði skýringa á seinkuninni. Það var í lok júnímánaðar sem Landsvirkjun óskaði eftir tilboðum í borun á allt að þremur háhitaholum á Norðausturlandi. Verkið felst í borun á allt að 2.500 metra djúpum háhitaholum, stefnuboruðum eða beinum sem áætlað er að bora á árunum 2012 til 2013. Samkvæmt auglýsingunni skiptist verkið í tvo verkáfanga. Verkáfangi 1 felur í sér borun á tveimur háhitaholum, annarri beinni og hinni stefnuboraðri, og verkáfangi 2 felur í sér borun á einni beinni háhitaholu til viðbótar. Fyrirvari er gerður í útboðsgögnum um gerð verksamnings um þriðju háhitaholuna. Landsvirkjun auglýsti fyrr í sumar einnig eftir tilboðum í uppsetningu vinnubúða Landsvirkjunar í Bjarnarflagi og rann tilboðsfrestur út þann 1. ágúst. Sex tilboð bárust og átti Rafeyri ehf. það lægsta, - upp á 27,5 milljónir króna, sem var um 82% af 33,7 milljóna króna kostnaðaráætlun. Vinnubúðirnar eiga að vera tilbúnar þann 15. nóvember.
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Fleiri fréttir Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Sjá meira