Viðskipti innlent

Íslendingar lásu Hungurleikana

JHH skrifar
Sögurnar um Hungurleikana voru vinsælustu kiljur í sumar, samkvæmt lista Rannsóknarseturs verslunarinnar. Þannig voru bækurnar Hungurleikarnir og framhald þeirrar bókar Eldar kvikna þær bækur sem seldust mest frá 3. júní til 11. ágúst. Í þriðja sæti kiljulistans var spennusagan Dauðadjúp eftir sænska höfundinn Åsa Larsson.

Listi yfir mest seldu bækurnar.
Á lista yfir 20 mest seldu kiljur sumarsins eru sex íslenskir höfundar. Unnur Birna Karlsdóttir er þar efst í 10. sæti með bókina Það kemur alltaf nýr dagur sem er fyrsta bók höfundar. Í næsta sæti þar á eftir er bókin Little book of the Icelanders eftir Öldu Sigmundsdóttur. Bók sem lýsir ýmsum sérkennum Íslendinga sem eru forvitnileg bæði fyrir útlendinga sem hingað koma og fyrir Íslendinga sem vilja spegla sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×