Viðskipti innlent

Olíufélög mega ekki taka tillit til samkeppnisaðilanna

BBI skrifar
Einar Örn Ólafsson, forstjóri Skeljungs, vísar því alfarið á bug að Skeljungur sé of skuldsett félag til að standa í samkeppni á markaði.

Í Viðskiptablaðinu í dag birtist viðtal við Hermann Guðmundsson, fráfarandi forstjóra N1. Þar segir hann m.a. að eldsneytisverð gæti verið lægra á Íslandi en ekkert félag hafi burði til að lækka verð nema N1 vegna skuldsetningar. Hann útskýrir auk þess að N1 hafi ekki lækkað verð sitt vegna þess að þeim hafi borið „skylda til þess að virða ákveðið ástand sem var á markaðnum, þ.e. að félögin voru misvel sett."

Einar Örn Ólafsson, forstjóri Skeljungs.
Einar Örn forstjóri Skeljungs vísar ummælum Hermanns á bug. „Í fyrsta lagi er Skeljungur hreint ekkert skuldsett félag. Það er mjög hæfilega skuldsett," segir hann.

Þá bendir hann á að forstjóri olíufélags eigi alls ekki að taka tillit til skuldsetningar samkeppnisaðila sinna. „Hann á bara að keyra sína samkeppni eins og hann getur og bjóða viðskiptavinum eins gott verð og hann telur sér fært."

Hermann ályktar í Viðskiptablaðinu að N1 hefði getað lækkað verðið tímabundið og þannig kæft samkeppni á 4-6 mánuðum. Þá yrðu 1-2 félög eftir á markaði og Hermann efast um að það sé draumur neytenda. Einar Örn telur að í þessu felist ákveðin rökvilla hjá honum. Í svona verðstríði hefði samkeppnisaðilum tæplega fækkað. „Bankar hefðu tekið félögin yfir, lækkað skuldsetningu og selt nýjum aðilum - eins og gert var á sínum tíma með N1," segir hann en lánadrottnar N1 hafa þurft að afskrifa kröfur á félagið upp á tugi milljarða á síðustu misserum. „Menn hefðu ekki lagt starfsemina af vegna tímabundins verðstríðs," segir Einar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×