Matur

Hreinsandi safi að hætti Valentínu á Krúsku

Valentína Björnsdóttir, eigandi Krúsku.
Valentína Björnsdóttir, eigandi Krúsku.

Valentína Björnsdóttir, eigandi Krúsku, var ekki í vandræðum með að deila smá hollustu með Lífinu enda snýst hennar lifibrauð um að elda dýrindis rétti sem eru hollir fyrir sál og líkama.

Hún deilir hér hreinsandi safa sem er tilvalinn eftir misgott mataræði sumarsins hjá mörgum hverjum.



Rauðrófu- og eplasafi


½ rauðrófa afhýdd

½ sítróna

2 græn epli

2 sellerístönglar

2 cm engifer

Allt sett í safapressu og drukkið strax.

Þessi safi er alltaf til hér á Krúsku og er mjög hreinsandi og hressandi.

Svo er líka mjög gott að drekka á hverjum morgni á fastandi maga 1 glas af soðnu vatni og kreista út í það ½ sítrónu.

Það þykir mjög hreinsandi fyrir líkamann. Einfalt og ódýrt heilsuráð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×