Ákveðið hefur verið að tónlistarhúsið Harpa verði rekin af einu félagi í eigu ríkis og borgar. Þetta er ákveðið eftir að í ljós kom að rekstrarafkoman verður neikvæð um 407 milljónir króna á árinu 2012 miðað við óbreyttar forsendur.
Áætlanir um kostnað við rekstur hússins hafa ekki gengið eftir. Fasteignagjöld verða hærri en áætlað var, rekstur hússins er dýrari og tekjur skila sér hægar en gert var ráð fyrir, jafnt tekjur af ráðstefnum sem veitingasölu og bílastæðahúsi. Vegna alls þessa hefur verið ákveðið að endurskoða rekstrargrundvöllinn.
Reksturinn fer nú fram í átta einkahlutafélögum. Með því að sameina reksturinn í einu félagi í eigu ríkis og borgar mun gagnsæi aukast, stjórnarhættir batna og hagræðing nást. Í framhaldi þessa verður ný eigendastefna Hörpu kynnt og rekstraráætlun til fimm ára sömuleiðis. Markmiðið verður að gera rekstur hússins sjálfbæran.
Frá því Harpan opnaði hafa 250 þúsund manns sótt 367 tónleika og menningarviðburði í húsinu.
Harpan rekin með 407 milljóna halla á árinu
BBI skrifar

Mest lesið

Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar
Viðskipti innlent


Óskar eftir starfslokum
Viðskipti innlent

Stækka hótelveldið á Suðurlandi
Viðskipti innlent

Almannatenglar stofna fjölmiðil
Viðskipti innlent


Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota
Viðskipti erlent

Borið á kvörtunum undan leigubílstjórum
Neytendur

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent

Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól
Viðskipti innlent