Viðskipti innlent

Ofurfyrirsæta vann mál gegn Kaupþingi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ofurfyrirsætan Elle Macpherson hefur ástæðu til að gleðjast.
Ofurfyrirsætan Elle Macpherson hefur ástæðu til að gleðjast.
Ástralska ofurfyrirsætan Elle Macpherson vann mál sem hún höfðaði gegn þrotabúi Kaupþings Singer & Friedlander, eftir því sem fram kemur á vefnum Financial News í dag. Þar kemur fram að fyrirtæki sem Macpherson átti og rak hafi átt lán hjá bankanum þegar hann féll árið 2008. Þá hafi Elle Macpherson sjálf átt innistæður í bankanum.

Ágreiningur Elle Macpherson við bankann snerist um það að hún vildi að lán fyrirtækis hennar hjá bankanum ætti að greiðast með innistæðum sem hún átti hjá bankanum, eftir því sem fram kemur á vefnum Financial News. Lögmannsstofan Speechly Bircham sótti málið fyrir Macpherson og vann það á grundvelli lagaákvæðis sem hefur ekki verið beitt síðan 1870. Macpherson hefur því heimild til að láta 2,5 milljóna sterlingspunda, eða 465 milljóna króna, lán upp í 7,8 milljóna punda, 1450 milljóna króna, lán fyrirtækisins.

Dómur hafði áður fallið Singer & Friedlander í hag þegar málið var fyrir dómstólum á eynni Mön en yfirréttur, svokallaður Queen's Privy Council sneri dómnum við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×