Viðskipti innlent

Skattahækkun muni auka svarta atvinnustarfsemi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Samtök ferðaþjónustunnar segja skattahækkunina hafa slæm áhrif á ferðaþjónustuna.
Samtök ferðaþjónustunnar segja skattahækkunina hafa slæm áhrif á ferðaþjónustuna. mynd/ stefán.
Skattahækkun á gistingu mun auka svarta atvinnustarfsemi í greininni, segja Samtök ferðaþjónustunnar. Þau furða sig á fréttum þess efnis að ríkisstjórnin skuli hækka virðisaukaskatt á gistingu úr 7% í 25,5%, eins og greint var frá í fréttum RÚV. Segja þau að þetta muni hækka verð á gistingu um 17,3%.

Samtökin segja að fjármálaráðherra og iðnaðarráðherra hafi óskað eftir fundi með forystu samtakanna til að ræða þetta mál en því verði ekki trúað að þingmönnum detti í hug að veita ferðaþjónustunni slíkt rothögg. „Því verður ekki trúað að ríkisstjórnin ætli að taka atvinnugrein, sem nú er á uppleið og skilar erlendum gjaldeyri sem aldrei fyrr, og skattpína hana út af markaðnum," segir í yfirlýsingu samtakanna.

Samtökin segja að í langflestum löndum Evrópu sé gisting í neðra þrepi virðisaukaskatts með það að markmiði að fjölga ferðamönnum, ekki síst ráðstefnugestum. Hvergi sé meiri samkeppni en um ráðstefnugesti sem séu meðal verðmætustu gesta. 17.3% verðhækkun til þeirra muni ekki fjölga gestum í Hörpu. Sá markaður muni hrynja.

„Slík stórhækkun skatta verður að sönnu mikill fengur fyrir þá miklu svörtu atvinnustarfsemi sem þrífst í þessari grein og mun auka hana og skekkja þar með enn frekar samkeppnisstöðu þeirra sem vilja fara að lögum," segja Samtök ferðaþjónustunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×