Viðskipti innlent

Framleiðsluverð lækkaði

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Parketframleiðsla í Grindavík
Parketframleiðsla í Grindavík
Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,1% í síðasta mánuði og vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 1,5%. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar.

Vísitala framleiðsluverðs í júní var 216,5 stig og lækkaði um 1,2% frá maí 2012. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 271,3 stig, sem er lækkun um 0,7% (vísitöluáhrif -0,2%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 232,6 stig, lækkaði um 2,0% (-0,7%). Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,3% (-0.1%) og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 1,0% (-0,2%).

Miðað við júní 2011 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 0,7% en verðvísitala sjávarafurða hækkað um 6,9%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 12,7% en matvælaverð hefur hækkað um 3,7%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×