Vilja að Fjármálaeftirlitið rannsaki starfsemi Lýsingar 12. júlí 2012 17:00
Félag atvinnurekenda hefur farið fram á það við Fjármálaeftirlitið að það rannsaki starfshætti fjármögnunarfyrirtækisins Lýsingar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér í dag. Félaginu hafa borist fjölmargar kvartanir vegna fjármögnunarleigusamninga. Félagið segir ljóst að Fjármálaeftirlitið hafi ekki gefið út að rannsókn sé hafin né heldur að hún standi til. Eftirlitið hafi þó gefið út að málið sé til skoðunar. Félag atvinnurekenda telur brýnt að háttsemi eftirlitsskyldra fjármálafyrirtækja sé rannsökuð og tryggt sé að starfshættir þeirra séu í samræmi við ákvæði laga. Hér að neðan er yfirlýsing Félags Til Félags atvinnurekenda hafa borist fjölmargar kvartanir um viðskiptahætti Lýsingar hf. í tengslum við fjármögnunarleigusamninga þeirra. Af þeim kvörtunum er ljóst að Lýsing hf. hefur neitað að viðurkenna endurkauparétt viðskiptavina sinna í lok samningstíma eða við sölu samningsandlagsins, þrátt fyrir um það hafi verið samið í upphafi og fyrir liggi löng framkvæmd fyrirtækisins í þá veru. Er sú háttsemi að mati Félags atvinnurekenda í andstöðu við 19. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki þar sem fram kemur að fjármálafyrirtæki beri að starfa í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti og venjur á fjármálamarkaði. Í því skyni að varpa ljósi á raunverulega framkvæmd fjármögnunarleigusamninga Lýsingar hf. sendi Félag atvinnurekenda þann 5. júní s.l. upplýsingabeiðni til Fjármálaeftirlitsins. Þar var meðal annars krafist tölulegra upplýsinga um fjölda fjármögnunarleigusamninga Lýsingar hf. á ákveðnu tímabili og hversu mörgum þeirra var lokið á grundvelli kaupréttar. Um er að ræða mikilvæg gögn sem aðeins eru á hendi fjármálafyrirtækisins. Fjármálaeftirlitið vísaði hinsvegar upplýsingakröfunni frá með þeim rökum að umbeðnar upplýsingar lægju ekki hjá stofnuninni. Liggja umræddar upplýsingar aðeins hjá fjármálafyrirtækinu og því nánast ótækt að sýna fram á almennt breytt viðhorf Lýsingar hf. þótt gögn bendi til þess í einstökum málum. Félag atvinnurekenda óskaði einnig eftir því við Fjármálaeftirlitið að, á grundvelli eftirlitsskyldu sinnar, starfshættir Lýsingar hf. yrðu rannsakaðir. Um mjög alvarlegar athugasemdir er að ræða og því mikilvægt að Fjármálaeftirlitið sinni slíkri skyldu. Hinsvegar er ljóst að Fjármálaeftirlitið hefur ekki gefið út að rannsókn sé hafin né heldur að hún standi til. Eftirlitið hefur þó gefið út að málið sé til skoðunar. Félag atvinnurekenda telur brýnt að háttsemi eftirlitsskyldra fjármálafyrirtækja sé rannsökuð og tryggt sé að starfshættir þeirra séu í samræmi við ákvæði laga.
Mest lesið Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Sjá meira