Viðskipti innlent

WOW samdi við Airport Associates

Baldur Oddur Baldursson er forstjóri WOW.
Baldur Oddur Baldursson er forstjóri WOW. mynd/ HAG.
Airport Associates og WOW air hafa gert samning sín á milli um flugafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli. Airport Associates er sjálfstætt starfandi flugafgreiðslufyrirtæki og hefur verið starfrækt frá árinu 1997. Félagið þjónustar fjölda flugfélaga svo sem Delta Airlines, Easyjet, Norwegian, German Wings og Air Berlin. „Við eru ánægð með að hafa náð samningum við Airport Associates en fyrirtækið hefur umsvifamikla starfsemi á Keflavíkurvelli og gríðarmikla reynslu í flugafgreiðslu" segir Baldur Oddur Baldursson, forstjóri WOW air, í tilkynningu frá félaginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×