Tíu starfsmönnum Hyrnunnar í Borgarnesi sagt upp Magnús Halldórsson skrifar 2. júlí 2012 13:19 Frá Borgarnesi.
Tíu starfsmenn Samkaupa í Hyrnunni í Borgarnesi fengu uppsagnarbréf í síðustu viku. Frá þessu er greint á vefsíðu Skessuhorns. Ómar Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samkaupa sem rekið hefur Hyrnuna, segir að þetta sé gert vegna þess að leigusamningur Samkaupa við húseigendur, N1, er að renna út um næstu áramót. „Það er fullur vilji hjá okkur í Samkaupum að reka Hyrnuna áfram en því miður hefur ekki náðst samkomulag við N1. Þá hefur heldur ekki náðst samkomulag hvernig yfirtaka þeirra á Hyrnunni verður háttað. Við hörmum mjög að þurfa að grípa til þessa ráðs og það er óþægilegt að starfsfólkið okkar þurfi að vera í þessari óvissu. Okkur var þetta nauðugur kostur," segir Ómar í viðtali við Skessuhorn. Sigurður Guðmundsson, rekstrarstjóri Hyrnunnar er meðal þeirra sem var sagt upp störfum. Hann segir þá sem nú fengu uppsagnarbréf vera með lengstan starfsaldur og þar af leiðandi lengstan uppsagnarfrest. Að sögn Ómars er gert ráð fyrir að allir ráðningasamningar Samkaupa verði lausir á haustmánuðum október og nóvember. Aðspurður hvers vegna samningar við starfsfólk renni út í október en ekki í lok árs líkt og leigusamningurinn segir Ómar í samtali við Skessuhorn, að það tengist því að ekki hafi náðst samninga við N1. „Enn hafa ekki náðst samningar við N1 um yfirtöku þeirra á rekstrinum og þess vegna gerum við ráð fyrir að þurfa að skila húsinu eins og við tókum við því. Því þurfum við tíma til að taka niður innréttingar og koma húsinu í samt horf. Því má gera ráð fyrir að rof verði á rekstri Hyrnunnar á síðustu mánuðum ársins." Samkaup hafa rekið Hyrnuna frá árinu 2004 en forverar þeirra opnuðu Hyrnuna í júní 1991. Sjá má fréttina á vef Skessuhorns hér.
Mest lesið Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent 43 ára kvikmyndasaga kvödd Samstarf Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Sjá meira