Hagstofan mælir minnsta atvinnuleysi í maí í fjögur ár 20. júní 2012 09:10
Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í maí 2012 að jafnaði 186.500 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 170.600 starfandi og 15.900 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 83,1%, hlutfall starfandi 76% og atvinnuleysi var 8,5%. Atvinnuleysi hefur lækkað um 2,5 prósentustig frá því í maí 2011 en þá var atvinnuleysi 11%. Atvinnuleysi hefur ekki mælst lægra í maí mánuði frá því 2008 þegar það mældist 4,3%. Atvinnuleysi mælist alltaf hæst í maí mánuði. Munar þar mestu að ungt fólk kemur inn á vinnumarkaðinn í auknum mæli í leit að starfi. Í maí 2012 var atvinnuleysi á meðal 16-24 ára 24,3% á meðan það var 4,8% hjá 25 ára og eldri. Atvinnulausir teljast þeir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, þ.e. höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu (í eina klukkustund eða lengur) sem launþegi eða sjálfstætt starfandi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar sem eru ekki í vinnu en eru í námi flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan. Starfandi fólki fjölgaði um 5.100 frá því í maí 2011. Hlutfall starfandi hækkaði um 2 prósentustig, úr 74% í 76%. Árstíðaleiðréttur fjöldi atvinnulausra í maí 2012 var 8.800 eða 4,9% en var 12.000 eða 6,6% í apríl. Fjöldi starfandi var 170.700 í maí 2012 eða 76,9% en var 168.600 í apríl eða 75%. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu voru heildarvinnustundir á viku jafn margar í maí og apríl 2012 eða 39,5 klst. Leitni árstíðaleiðréttingar sýnir að atvinnuleysi hefur lækkað nokkuð jafnt síðustu 12 mánuði eða um 1,4 prósentustig.
Mest lesið Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Sjá meira