Landsframleiðslan hérlendis er 10% yfir meðaltali ESB landa 21. júní 2012 09:19
Landsframleiðsla á mann leiðrétt fyrir kaupmætti í hverju landi fyrir sig var 10% yfir meðaltali ESB landanna hér á landi á síðastliðnu ári samkvæmt tölum sem hagstofa Evrópusambandsins hefur birt. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þessi mælikvarði sé oft notaður á velferð og virðist hún vera nokkuð viðunandi á Íslandi í þessum samanburði þrátt fyrir allt sem hér hefur gengið á í efnahagsmálum á undanförnum árum. En þetta er ekki eini mælikvarðinn á velferð. Annar slíkur mælikvarði sem endurspeglar sennilega betur velferð heimilanna í hverju landi fyrir sig er neysla á mann leiðrétt fyrir kaupmætti. Á þann mælikvarða var Ísland með neyslu á mann sem var 7% yfir meðaltali ESB landanna á síðastliðnu ári samkvæmt tölum hagstofu Evrópusambandsins. Það land sem kemur einna best út úr þessum samanburði er Noregur. Var landsframleiðsla á mann leiðrétt fyrir kaupmætti 89% yfir meðaltali ESB ríkjanna á síðastliðnu ári. Þarf það svo sem ekki að koma á óvart en þannig hefur það verið undanfarin ár. „Ákveðinn fyrirvara þarf þó að hafa á tölunum þar sem olíutekjur eru svo stór hluti af landsframleiðslu Noregs og er þeim tekjum haldið að miklu leyti fyrir utan hagkerfið. Engu að síður dylst það engum að velferðin er mikil þar í landi og er það ástæða þess m.a. af hverju jafn mikið af Íslendingum hafa flust til Noregs á undanförnum árum og raun ber vitni," segir í Morgunkorninu. „Austur-Evrópuríkin eru neðst í þessum samanburði. Þannig var landsframleiðsla á mann rétt um helmingur ESB meðaltalsins í Búlgaríu, Rúmeníu, Lettlandi og Litháen. Svipaða sögu segir neysla á mann leiðrétt með kaupmætti. Landsframleiðsla Íslands var einnig 10% yfir meðaltali ESB landanna árið 2010. Staða hagkerfisins tók þannig ekki breytingum á milli áranna 2010 og 2011 á þann mælikvarða. Árið 2009 var landsframleiðslan hér hins vegar 20% yfir meðaltali ESB landanna og hefur skiljanlega lækkað nokkuð frá árunum rétt fyrir hrun."
Mest lesið Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Fleiri fréttir „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Sjá meira