Viðskipti innlent

Húsaleiguverð lækkar í borginni

Húsaleiguverð lækkaði á höfuðborgarsvæðinu í maí miðað við fyrri mánuð. Á vefsíðu Þjóðskrár Íslands segir að vísitala leiguverðs hafi lækkað um 1,7% á svæðinu milli þessara mánaða.

Vísitalan hefur hinsvegar hækkað um 1,1% á síðustu þremur mánuðum og um 6,2% á síðustu 12 mánuðum.

Dýrasta fermetraverðið er fyrir stúdíóíbúð milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar eða 2.342 krónur. Ódýrasta fermetraverðið er hinsvegar fyrir fjögurra herbergja íbúð í Garðabæ, Hafnarfirði eða Álftanesi eða 1.175 krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×